
Náðu varanlegum árangri og komdu í veg fyrir stöðnun.
Með þessu prógrammi sérðu raunverulegar breytingar, bæði í vöðvamassa og almennu líkamlegu formi. Æfinga- og næringar planið er byggt á vísindalegum grunni og einstaklingsmiðað til að tryggja árangur sem þú sérð og heldur til lengri tíma.
Næringaráætlun sniðin að þér.
Ég skoða neysluhegðun þína til að sjá hvar þú getur gert litlar, áhrifaríkar breytingar sem virka fyrir þig, án þess að þú þurfir að fórna öllu sem þú nýtur í mataræði þínu.
Þjálfari með reynslu og þekkingu.
Ég hef víðtæka reynslu sem þjálfari og B.Sc. menntun í íþrótta- og heilsufræði, og hef ég sett saman prógram sem er bæði áhrifaríkt og skýrt, svo þú getur einbeitt þér alfarið að æfingunum og treyst á að þær leiði til árangurs.

Ókosturinn við mörg prógröm
Mörg æfingaprógram eiga það sameiginlegt að þau virka aðeins sem skammtímalausn. Þú byrjar hjá þjálfara eða á ákveðnu prógrami, gengur mjög vel yfir tímabilið, en endar svo á byrjunarreit 2-3 mánuðum seinna.
Strangar og hamlandi aðferðir
Þú ert látin fylgja mjög ströngu mataræði sem er engan hægt að fylgja til lengdar. 2-3 mánuðum seinna ertu á sama stað og þú byrjaðir því að þú hefur ekki fengið neina fræðslu eða þau tæki og tól til þess að ná langtíma árangri.
Ósjálfbært næringarplan
Þér er sagt þér nákvæmlega hvað þú átt að borða og hversu mikið af því. Algjörlega hunsað hvort þér líki við þann mat sem þú ert látin borða, eða hvort þú getir yfir höfuð fylgt mataræðinu. Við vitum báðir að enginn er að fara borða svona yfir lengri tíma.


Munurinn á Massa og mótun á 12 vikum og öðrum æfingaprógrömmum
Vísindalegar aðferðir
Massi og mótun á 12 vikum styðst við vísindalega aðferðir með það að markmiði að auka vöðvauppbyggingu og fitubrennslu.
Skipulag og stefna
Prógrammið gerir ráð fyrir stigvaxandi álagi með léttum vikum inn á milli. Þessi aðferð hefur sýnt fram á mestan árangur við að byggja upp styrk og vöðvamassa, með sem minnstu meiðslahættu.
Upphitun
Prógramið inniheldur greinargóða upphitun svo þú getir verið viss um að þú sért klár í æfinguna og munir að öllu líkindum ekki meiðast.
Næringarráðleggingar sem hægt er að fylgja
Næringarþjálfuninn er sniðin algjörlega að þér. Ég fer yfir hvernig neysluhegðun þín er og sé þannig hvað þú þarft að bæta og breyta. Engar öfgar eða aðferðir sem þú getur ekki fylgt til lengri tíma.
Sjá árangurinn sem iðkendur mínir hafa náð
.png)
.png)

.png)
.png)


Svona er prógrammið uppsett
Þar sem Massi og mótun á 12 vikum er sérstaklega hannað til þess að þú náir að bæta á þig vöðvamassa og auka fitubrennslu er skipulag og strategía lykilatriði svo þú náir árangri. Svona líta fyrstu fjórar vikurnar út.
Vika 1 & 2:
-
Upphitun fyrir þá vöðvahópa sem taka þátt í æfingu hvern dag fyrir sig.
-
Styrktaræfingar 6x í viku með fókus á vöðvavinnu í lengingu, hver vöðvahópur fær æfingu 2x í viku með tveggja daga hvíld á milli.
-
HIIT intervöl 4x í viku.
-
Teygjur til að koma í veg fyrir meiðsli, auka blóðflæði til vöðva og flýta fyrir recovery.
Vika 3 & 4:
-
Upphitun fyrir þá vöðvahópa sem taka þátt í æfingu hvern dag fyrir sig.
-
Styrktaræfingar 6x í viku þar sem meiri áhersla er á vöðvavinnu í lengingu.
-
Framkvæmt verða færri sett með meiri þyngd, hver vöðvahópur fær æfingu 2x í viku með tveggja daga hvíld á milli.
-
HIIT intervöl 4x í viku.
-
Teygjur til að koma í veg fyrir meiðsli, auka blóðflæði til vöðva og flýta fyrir recovery.

Innifalið í prógraminu er
Sjáðu hvað fólk hefur að segja

Um mig
Áhugamál
Ég heiti Atli og hef stundað ýmsar íþróttir frá barnsaldri og er heilsuefling og líkamsrækt með helstu áhugamálum mínum. Frá sjö ára aldri hefur ég stundað áhaldafimleika og byrjaði að æfa hjá meistaraflokki Gerplu á unglingsaldri allt til dagsins í dag.
Menntun & reynsla
Vorið 2021 útskrifaðist ég með B.Sc. gráðu í íþrótta- og heilsufræði frá Háskóla Íslands, þar sem ég öðlaðist djúpa þekkingu á þjálfunarlífeðlisfræði, hreyfifræði og árangursmiðaðri þjálffræði. Ég starfaði um stund hjá Greenfit við heilsufarsmælingar og ráðgjöf, þar sem ég notaði vísindalega nálgun til að hjálpa viðskiptavinum að ná heilsufarslegum markmiðum sínum. Ég hef einnig starfað við hóp- og einstaklingsþjálfun, sem og leiðsögn í tækjasal hjá Ljósinu og Trainstation, þar sem ég hef náð árangri með mörgum einstaklingum af öllum getustigum.
Markmið
Aðalmarkmið mitt er ekki einungis að bæta líkamlegan árangur, afkastagetu, útlit og vellíðan, heldur einnig að bæta venjur þínar svo að þú náir varanlegum árangri . Einnig legg ég áherslu á að gera líkamsrækt og heilsueflingu að hluta af lífsstíl, ekki einungis “eitt af því sem þú þarf að gera”. Til þess að ná þeim markmiðum tel ég að líkamsrækt og heilsuefling þurfi að vera skemmtileg og spennandi. Ástæðan fyrir því að þetta er markmið mitt er vegna þess að í dag er vinsælt að vera í einhverskonar sérstöku átaki eða sérstöku mataræði til að ná árangri. Staðreyndin er að í lang flestum tilfellum virka þessi átök eða kúrar ekki til lengri tíma. Til eru miklu einfaldari og skilvirkari aðferðir. Með minni menntun og reynslu get ég aðstoðað þig við að finna auðveldari og skilvirkari leiðir til að ná árangri sem endist.
Massi og mótun á 12 vikum er fyrir þig ef þú uppfyllir neðangreind atriði
✔️ Þú vilt æfa hjá þjálfara sem er með staðfesta reynslu og þekkingu.
✔️ Þú vilt bæta vöðvamassa og komast í gott form.
✔️ Þú vilt sjá á svörtu og hvítu hvað í mataræðinu þínu er að koma í veg fyrir að þú náir að bæta vöðvamassa og fitubrennslu.
✔️ Þú vilt æfa eftir aðferðum sem hafa sannað sig.
✔️ Hefur tök á að æfa 5-6x í viku, 1 klst 4x í viku og 1,5 klst 2x í viku.
✔️ Hefur aga og metnað til að fylgja fyrirmælum
✔️ Þú ert tilbúin til að skrá niður mataræðið þitt í 3 vikur.
✔️ Hefur stundað íþróttir eða líkamsrækt áður.
Massi og mótun á 12 vikum er ekki fyrir þig ef neðangreind atriði eiga við
❌ Þú býrð til afsakanir til þess að sleppa við að æfa og skrá mataræðið þitt.
❌ Þér er ekki alvara með að ná árangri.
❌ Þú ert að leitast eftir næringarkúr.
❌ Þú ert að leitast eftir skyndilausn.
❌ Þú hefur ekki tíma til að æfa 5x í viku
❌ Þú ert að leitast eftir einka- fjarþjálfun.
❌ Þú hefur aldrei stundað líkamsrækt eða íþróttir áður.
Ef þú ert að leitast eftir einka-fjarþjálfun og/eða ert að taka þín fyrstu skref í líkamsrækt, smelltu þá á “Skrá mig í einka-fjarþjálfun” hnappinn.

Er þetta rétta prógrammið fyrir mig?

Frí prufuvika og 100% endurgreiðsla ef þú nærð ekki árangri
Ertu óviss hvort þetta sé fyrir þig? Ef svo er vil ég gefa þér eina viku frítt. Þannig sjáum við hvort við vinnum vel saman.
Ekki nóg með það. Ég er líka tilbúinn að gera díl við þig.
Ef þú ferð samviskusamlega eftir öllum ráðleggingum sem ég gef þér og fylgir æfingarprógraminu en getur ekki sagt að þú hafir náð bætingum í einhverjum, ef ekki flestum neðangreinda þátta eftir þjálfunartímabilið.
✔️ Aukinn styrkur
✔️ Massaðari
✔️ Betra líkamlegt form
✔️ Bætt andleg og líkamleg heilsa
✔️ Meira sjálfstraust
✔️ Bætt líkamlegt útlit
✔️ Færð hrós fyrir ofangreinda þætti
Þá færðu 100% endurgreiðslu (mælingar eru óendurgreiðanlegar)
Engin skuldbinding. 100% endurgreiðsla ef þú nærð ekki árangri.



.png)